Kæru íbúar og aðstandendur
Með hliðsjón af tilmælum sóttvarnaryfirvalda og því að smitgát á heimilinu er aflétt þá opnum við að nýju fyrir heimsóknir inn á Brákarhlíð f.o.m. þriðjudeginum 9. nóvember með eftirfarandi skilyrðum:
Heimilið er opið á milli kl. 13:00 og 18:00, vinsamlegast virðið þær tímasetningar eftir fremsta megni sé það unnt. Við hvetjum ykkur til að gæta ítrustu árvekni og hafa sóttvarnaráðstafanir í heiðri.
Allir gestir spritti hendur og setji upp grímu við komu, heimilt er að taka niður grímu inn á herbergjum. Íbúar eru undanþegnir grímuskyldu en starfsmenn bera grímu við störf sín.
Að öllu jöfnu mæti sem fæstir gestir í heimsókn til íbúa á dag nema að höfðu samráði við starfsfólk. Við mælumst til að aðstandendur tali sig saman um hvernig heimsóknum er háttað.
Gestir fara rakleiðis í herbergi íbúa og aftur að útidyrum að heimsókn lokinni.
Gestir mega ekki staldra við í sameiginlegum rýmum heimilisins.
Við hvetjum alla til að hafa opið fyrir rakningarapp Almannavarna í símum sínum !
Heimilið er ekki lokað og íbúum er heimilt að fara út af heimilinu en við biðjum um að ekki sé farið í fjölmenna mannfagnaði eða aðra fjölmenna staði/samkomur.
Gestir mega ekki koma í heimsókn ef þeir:
- Eru í sóttkví eða smitgát.
- Eru í einangrun (einnig meðan beðið er niðurstöðu úr sýnatöku).
- Hafa dvalið erlendis undanfarna daga og eru ekki komnir með neikvæða niðurstöðu úr skimun eftir komuna til landsins.
- Hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.
- Eru með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang).
Sem fyrr eru undantekningar gerðar, í samráði við starfsfólk, ef um mikil veikindi heimilismanna er að ræða.
Þessar reglur verða endurskoðaðar um leið og forsendur breytast.
Með virðingu, vinsemd og þakklæti fyrir skilning á aðstæðum.
Borgarnesi 8. nóvember 2021
Stjórnendur Brákarhlíðar