Seinni bólusetning heimilisfólks

[ad_1]

Fimmtudaginn 21. janúar, er komið að seinni bólusetningu heimilisfólks í Brákarhlíð við COVID-19 og því flöggum við í tilefni dagsins

Reynslan sýnir að bólusettir einstaklingar eru líklegri til að fá mögulega meiri flensueinkenni við síðari bólusetningu en við fyrri en fylgst verður vel með öllu heimilisfólki eins og áður.

Viku til 10 dögum síðar er talið að bóluefnið hafi náð fullri virkni og þá verður þungu fargi létt af mörgum. Þeir heimilismenn sem ekki fengu fyrri bólusetningu í desember fá sína fyrstu bólusetningu nú.

Heimsóknarreglur verða áfram óbreyttar.
Við bíðum fyrirmæla varðandi breytingar á heimsóknarreglum frá samráðshópi almannavarna og hjúkrunarheimila um heimsfaraldur en ekki má búast við miklum afléttingum á sóttvörnum þar sem bólusetning starfsmanna hjúkrunarheimila hefur verið færð í forgangsröðun fyrir aftan Íslendinga 70 ára og eldri.

Með vinsemd,
Stjórnendur Brákarhlíðar

[ad_2]