1. ágúst – uppfærðar reglur varðandi heimsóknir

Ágætu heimilismenn, aðstandendur & aðrir velunnarar heimilismanna í Brákarhlíð,

 Þar sem COVID-19 smitum hefur fjölgað í samfélaginu síðustu daga og í ljósi tillagna samráðshóps hjúkrunarheimila sem útgefnar voru 31.júlí um að hjúkrunarheimili grípi til strangari aðgerða  v/Covid 19 höfum við ákveðið að eftirfarandi gildi frá 1. ágúst og gildi þar til annað er ákveðið.

Heimiluð er ein heimsókn á dag til hvers heimilismanns, einn gestur í senn, eins og kveðið er á um í leiðbeiningum samráðshóps hjúkrunarheimila.

Heimsóknir eru heimilar á milli kl. 13:00 og 18:00.

Gestir sem til okkar koma þurfi að hringja dyrabjöllu til þess að komast inn og geri grein fyrir hvern verið er að heimsækja. 

Heimsóknarreglur:

  • Aðeins einn aðstandandi má heimsækja íbúa hverju sinni.

(Undanþága er aðeins veitt við mikil veikindi íbúa og þarf að fá leyfi stjórnenda)

  • Viðkomandi þarf að spritta hendur um leið og komið er inn, í upphafi heimsóknar.
  • Við biðjum um að farið sé beint inn á herbergi til íbúans og ekki stoppa og spjalla á leiðinni. Ef íbúi er ekki inni á herbergi biðjið þá starfsfólk um að sækja hann, ekki gera það sjálf.
  • Virðið 2ja metra regluna og forðist snertingu við íbúa eins og hægt er.
  • Að heimsókn lokinni farið þá beint út án þess að stoppa og spjalla á leiðinni. Vinsamlegast sprittið hendur við brottför.

Eftirfarandi reglur gilda áfram:

  • Ekki koma í heimsókn ef þú ert í einangrun eða sóttkví.
  • Ekki koma í heimsókn ef þú ert að bíða eftir niðurstöðu úr sýnatöku.
  • Ekki koma í heimsókn ef þú ert með flensueinkenni (kvef, hósta, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl).
  • Ekki koma í heimsókn ef þú varst erlendis fyrir minna en 14 dögum.

Þessar reglur, sem ætlaðar eru til að vernda heimilismenn og starfsfólk okkar, verða endurskoðaðar eftir þörfum og verður send út tilkynning um leið og einhver breyting verður.

Með vinsemd og þakklæti fyrir skilning á aðstæðum – við gerum og getum þetta saman !

Borgarnesi 1. ágúst 2020

Stjórnendur Brákarhlíðar