9 ár í dag, 26.ágúst, síðan fyrsta skóflustunga að viðbyggingu við Brákarhlíð átti sér stað. Eftirminnilegur góðviðrisdagur …..rúmum 22 mánuðum síðar var allt komið í fullan snúning og öll herbergi komin í notkun
Dýrmætt verkefni sem samfélagið stóð einhuga að.
Nándin í veikindunum – Vísir
Falleg og góð hugleiðing frá Jónu Hrönn Bolladóttur sem við leyfum okkur að deila hér inn á síðuna okkar í Brákarhlíð. Nándin í veikindunum – Vísir Ég hef leyft mér á þessum vettvangi að ræða um aðstæður heilabilaðra og ástvina þeirra.
Kæru vinir, í Skessuhorni vikunnar er starfsauglýsing frá okkur í Brákarhlíð sem…
Kæru vinir, í Skessuhorni vikunnar er starfsauglýsing frá okkur í Brákarhlíð sem hönnuður blaðsins setti upp Okkur í Brákarhlíð vantar semsagt hjúkrunarfræðing í okkar öfluga og góða starfsmannnahóp, endilega látið berast
Við erum þakklát fyrir jákvæð viðbrögð við hugmynd okkar um að taka göngutúr frá…
Við erum þakklát fyrir jákvæð viðbrögð við hugmynd okkar um að taka göngutúr frá Brákarhlíð yfir í þjónustufyrirtæki og stofnanir í nágrenni heimilisins til að skoða aðgengismál. Helga okkar sýndi í raun hvar aðgerða er þörf. Sumstaðar eru aðgengismálin í fínu lagi en annarsstaðar þarf að bæta úr – eftir þennan labbitúr erum við sannfærð um að margt verður komið …
Alzheimerhverfi í Hollandi
Sjá hér stutta frásögn af Alzheimerhverfi sem heitir De Hogeweyk í Hollandi. Þetta er lokað hverfi, inni í öðru hverfi sem heitir Weesp, sem hluti starfsmanna Brákarhlíðar, ásamt Ingrid Kuhlman, heimsótti í vor. Afar áhugaverð heimsókn Alzheimerhverfi í Hollandi Þar býr fólk á litlum heimilum og nýtur meira sjálfsræðis en við þekkjum hér
Kvenfélagið Lilja í Eyja- og Miklaholtshreppi fagnaði 90 ára afmæli fyrr á árinu…
Kvenfélagið Lilja í Eyja- og Miklaholtshreppi fagnaði 90 ára afmæli fyrr á árinu. Í tilefni afmælisins var samþykkt að færa íbúum Brákarhlíðar að gjöf kr. 90.000,- í söfnun sem fram fer til þess að byggja gróðurhús/garðskála. Fulltrúar félagsins komu í Brákarhlíð fyrir skömmu og afhentu gjöfina, það voru þær Herdís Þórðardóttir, Katharina Kotschote og Veronika Guðrún Sigurvinsdóttir sem komu til …
Þá er síðasti kaffihúsadagurinn fyrir sumarfrí liðinn, fjöldi fólks kom í heims…
Þá er síðasti kaffihúsadagurinn fyrir sumarfrí liðinn, fjöldi fólks kom í heimsókn í þessu yndislega veðri setið bæði inni og úti. Takk allir sem komu
Sól úti sól inni. Síðasta kaffihús fyrir sumarfrí. Verið velkomin !
Sól úti sól inni. Síðasta kaffihús fyrir sumarfrí. Verið velkomin !
Föstudags myndir. Notaleg stund þegar Þuríður les Skessuhornið. Við bökuðum vína…
Föstudags myndir. Notaleg stund þegar Þuríður les Skessuhornið. Við bökuðum vínarbrauð á fimmtudeginum og svo var settur glassúr í gær. Næsta þriðjudag verður síðasta kaffihús fyrir sumarfrí. Við þökkum frábærar viðtökur og hlökkum til að sjá ykkur.