Mánudaginn 12.febrúar fengum við til okkar góðan gest í Brakarhlíð, Ingrid Kuhlm...

Mánudaginn 12.febrúar fengum við til okkar góðan gest í Brakarhlíð, Ingrid Kuhlm…

Mánudaginn 12.febrúar fengum við til okkar góðan gest í Brakarhlíð, Ingrid Kuhlman, framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar, kom til okkar og talaði um Hamingjuna í sinni víðtæku mynd.

Hugtakið hamingja hefur verið viðfangsefni heimspekinga í aldaraðir. Fræðimenn á sviði félagsvísinda hafa lagt sig fram í seinni tíð til að finna hina sönnu uppskrift að hamingjuríku lífi. Hamingjan hefur einnig verið mörgum söngskáldum og rithöfundum hugleikin og verið ljóðrænt viðfangsefni söngva, ljóða og skáldsagna.

Rannsóknir í jákvæðri sálfræði hafa sýnt að fólk upplifir oft mestu hamingjuna eftir að það hættir að vinna. Við getum því lært mikið af eldri borgurum um það hvernig eigi að lifa hamingjusömu og ánægjulegu lífi.

Í heimildarmyndinni var rætt við 13 einstaklinga á aldrinum 70-91 árs um það hvernig þeir hafa skapað sér hamingjuríka tilveru. Viðtölin færa okkur heillandi innsýn í það sem viðmælendur gera í dag til að auka vellíðan sína.

Ingrid Kuhlman er þjálfari og ráðgjafi og jafnframt framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar. Hún er með diplóma á meistarastigi í jákvæðri sálfræði og diplóma í praktísku kvikmyndanámi frá Met Film School í London. Ingrid hefur skrifað ótal greinar í erlend og íslensk tímarit, m.a. um fræðslumál, sjálfstraust, samskipti, tímastjórnun, markmiðasetningu, seiglu, hamingju og streitu.