Heimsóknarreglur í Brákarhlíð, gilda frá 30. júlí 2020

Ágætu heimilismenn, aðstandendur & aðrir velunnarar heimilismanna í Brákarhlíð,

 Þar sem COVID-19 smitum hefur fjölgað í samfélaginu síðustu daga og í ljósi hvatningar landlæknis til hjúkrunarheimila teljum við í Brákarhlíð nauðsynlegt að bregðast við til að vernda okkar heimilismenn og starfsfólk.

Við í Brákarhlíð höfum ákveðið, f.o.m. 30. júlí, að takmarka þann fjölda sem kemur inn á heimilið á hverjum tíma á þann hátt að nú mega einn til tveir aðstandendur heimsækja hvern íbúa hverju sinni.  Biðlað er til heimilismanna og aðstandenda að skipulegga heimsóknir þannig að ekki verði um að ræða fleiri en eina heimsókn á dag til hvers og eins.

Heimsóknarreglur: 

  • Aðeins einn til tveir aðstandendur mega heimsækja íbúa hverju sinni. (Undanþága er aðeins veitt við mikil veikindi íbúa og þarf að fá leyfi stjórnenda)
  • Viðkomandi þarf að spritta hendur um leið og komið er inn, í upphafi heimsóknar.
  • Við biðjum ykkur um að fara beint inn á herbergi til íbúans og ekki stoppa og spjalla á leiðinni. Ef íbúi er ekki inni á herbergi biðjið þá starfsfólk um að sækja hann, ekki gera það sjálf.
  • Virðið 2ja metra regluna og forðist snertingu við íbúa eins og hægt er.
  • Að heimsókn lokinni farið þá beint út án þess að stoppa og spjalla á leiðinni. Vinsamlegast sprittið hendur við brottför.

Eftirfarandi reglur gilda áfram:

  • Ekki koma í heimsókn ef þú ert í einangrun eða sóttkví.
  • Ekki koma í heimsókn ef þú ert að bíða eftir niðurstöðu úr sýnatöku.
  • Ekki koma í heimsókn ef þú ert með flensueinkenni (kvef, hósta, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl).
  • Ekki koma í heimsókn ef þú varst erlendis fyrir minna en 14 dögum.

Þessar reglur verða endurskoðaðar eftir þörfum og verður send út tilkynning um leið og einhver breyting verður.

Með vinsemd og ósk um skilning á aðstæðum,

 

Borgarnesi 30. júlí 2020

Stjórnendur Brákarhlíðar