Heimsóknarreglur, gilda frá 23. desember 2021

Kæru íbúar og aðstandendur

Nú þegar jólahátíð gengur í garð viljum við upplýsa íbúa og aðstandendur um breytingu á heimsóknarreglum vegna fjölgunar smita og nýrra takmarkana í samfélaginu.

Eftirfarandi reglur gilda frá 23.desember uns annað verður tilkynnt: 

Að öllu jöfnu mæti ekki fleiri en 2 gestir í heimsókn til íbúa á dag, saman eða í sitthvoru lagi. Við mælumst til að aðstandendur tali sig saman um hvernig heimsóknum er háttað.

Heimilið er opið á milli kl. 13:00 og 18:00 nema á aðfangadag og gamlársdag en þá verður opið á milli kl. 12:30 og 17:30, vinsamlegast virðið fyrrgreindar fjöldatölur og tímasetningar.  Við hvetjum ykkur til að gæta ítrustu árvekni og hafa allar sóttvarnaráðstafanir í heiðri.

Við biðlum til óbólusettra, þ.m.t. barna, að koma ekki í heimsókn að svo stöddu.

Allir gestir spritti hendur og setji upp grímu við komu, heimilt er að taka niður grímu inn á herbergjum.

Gestir mega ekki staldra við í sameiginlegum rýmum heimilisins heldur gangi beint til herbergis þess sem verið er að heimsækja og aftur beint að útidyrum að heimsókn lokinni.

Við hvetjum alla til að hafa opið fyrir rakningarapp Almannavarna í símum.

Heimilið er ekki lokað og íbúar mega fara út. Við biðjum um að ekki sé farið í fjölmenni enda 20 manna regla nú við lýði. Ef heimilismenn ætla úr húsi, t.a.m. á aðfangadagskvöld, þarf að láta starfsmenn vita.

Við biðjum gesti að koma ekki í heimsókn ef þeir:

  • Eru í sóttkví eða smitgát.
  • Eru í einangrun (einnig meðan beðið er niðurstöðu úr sýnatöku).
  • Hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.
  • Eru með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang).
  • Hafa dvalið erlendis undanfarna daga og eru ekki komnir með neikvæða niðurstöðu úr skimun eftir komuna til landsins.

Sem fyrr eru undantekningar gerðar og þá í samráði við starfsfólk.

Við vonum að heimilisfólk og ættingjar finni leiðir til þess að eiga notalega samverustund með sínum ástvinum um hátíðirnar þrátt fyrir takmarkanir, t.d. á facetime.

Með virðingu, vinsemd og ósk um gleðileg jól kæru vinir með þökk fyrir afskaplega góð samskipti á árinu sem er að líða.

Borgarnesi 22. desember 2021

f.h. Brákarhlíðar

Halla, Jórunn og Bjarki