Við afléttum grímuskyldu nema hjá óbólusettum einstaklingum

Kæru íbúar og aðstandendur
Við í Brákarhlíð höfum ákveðið að aflétta grímuskyldu að því undanskyldu að þeir sem eru óbólusettir þurfa áfram að bera grímu inn á heimilinu hvort sem um er að ræða starfsmenn, ættingja heimilismanna eða aðra sem inn á heimilið eiga erindi.
Eftirfarandi reglur gilda áfram:
• Gestir spritti hendur þegar gengið er inn á heimilið.
• Gestir fari til herbergis íbúa og aftur að útidyrum að
heimsókn lokinni, ekki staldra við í sameiginlegum rýmum
heimilisins.
• Virða skal 2ja metra reglu í samskiptum við starfsfólk.
Við hvetjum alla til að hafa opið fyrir rakningarapp Almannavarna í símum sínum !
Íbúum er heimilt að fara út af heimilinu en við biðjum um að ekki sé farið í mjög fjölmenna mannfagnaði eða aðra fjölmenna staði/samkomur að svo stöddu.
Gestir mega ekki koma í heimsókn ef þeir:
a. Eru í sóttkví.
b. Eru í einangrun (einnig meðan beðið er niðurstöðu úr sýnatöku).
c. Hafa dvalið erlendis undanfarna daga og eru ekki komnir með neikvæða niðurstöðu úr skimun eftir komuna til landsins.
d. Hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.
e. Eru með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang).
Sem fyrr eru undantekningar gerðar, í samráði við starfsfólk, ef um mikil veikindi heimilismanna er að ræða.
Þessar reglur verða endurskoðaðar um leið og forsendur breytast.
Með virðingu og vinsemd,
Borgarnesi 13. september 2021
Stjórnendur Brákarhlíðar