Til hamingju með daginn konur Í dag er hátíðs- og baráttudagur kvenna á Ísland...

Uppfærðar heimsóknarreglur 16. apríl 2021

Ágætu heimilismenn, aðstandendur & aðrir velunnarar heimilismanna í Brákarhlíð

 Eftirfarandi reglur gilda varðandi heimsóknir frá og með 16. apríl 2021 þangað til annað verður tilkynnt:

Opið er á heimsóknir alla daga milli kl. 13:00 og 18:00

Gestir verða að bera andlitsgrímu við komu inn á heimilið.

 Áfram mega tveir einstaklingar koma í heimsókn í einu, fleiri en ein heimsókn á dag er nú heimil.

Einnig eru börn velkomin, þau teljast þá sem annar aðilinn í heimsókninni.

  • Fyrri heimsóknarreglur gilda um þá heimilismenn sem ekki eru enn fullbólusettir.

Persónulegar sýkingavarnir s.s. handþvottur, sprittun og notkun andlitsgríma á enn við.  Heimilisfólk og gestir verða að spritta hendur við komu.

  • Við biðjum um að farið sé stystu leið til og frá herbergi heimilismanns og ekki stoppa og spjalla á leiðinni. Varast ber sameiginlega snertifleti.
  • Ekki er heimilt að nýta setustofur og opin rými til heimsókna
  • Virðið 2ja metra reglu við aðra heimilismenn og starfsfólk því það hefur ekki fengið seinni bólusetningu.

Heimilismönnum mega fara út af heimilinu, t.d. í bílferðir og heimsóknir.  Munum samt að áfram þarf að fylgja ýtrustu reglum almannavarna, virða fjöldatakmarkanir og gæta allra sóttvarna utan Brákarhlíðar.

Eftirfarandi reglur gilda áfram:

  • Ekki koma í heimsókn ef þú ert í einangrun eða sóttkví eða að bíða eftir niðurstöðu úr sýnatöku.
  • Ekki koma í heimsókn ef þú ert með flensueinkenni (kvef, hósta, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl).
  • Ekki koma í heimsókn ef þú varst erlendis fyrir minna en 14 dögum.

Þessar reglur, sem ætlaðar eru til að vernda heimilismenn og starfsfólk okkar verða endurskoðaðar eftir þörfum og þróun mála.  Send verður út ný tilkynning ef breyting verður á.

Með virðingu og vinsemd,

Borgarnesi 16. apríl 2021

Stjórnendur Brákarhlíðar