Sjá auglýsingu frá fulltrúa Sýslumanns vegna kosninga: Utankjörfundaratkvæðagre…

Sjá auglýsingu frá fulltrúa Sýslumanns vegna kosninga:

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
– Dvalarheimilið Brákarhlíð Borgarnesi –

Vegna kosninga til Alþingis, sem fram munu fara laugardaginn 29. október 2016, hefur verið ákveðið í samráði við stjórnendur dvalarheimilisins Brákarhlíð í Borgarnesi, og skv. heimild í 4. og 5. mgr. 58. gr. laga um kosningar til Alþingis, að kosning fari hér fram, fyrir þá vistmenn sem ekki komast á kjörstað, miðvikudaginn 19. október 2016, frá kl. 10.00 til 12.00. Atkvæðagreiðslan fer fram í Samkomusal Brákarhlíðar.

Vinsamlegast athugið að ekki verður kosið hér á öðrum tíma.

Kjósendum er bent á að hafa persónuskilríki meðferðis á kjörstað.

Borgarnesi, 17. október 2016
Fyrir hönd Sýslumannsins á Vesturlandi
– Jón Einarsson fulltrúi –