Kæru vinir okkar í Brákarhlíð !
 Áríðandi tilkynning til íbúa, ættingja og starf...

Kæru vinir okkar í Brákarhlíð ! Áríðandi tilkynning til íbúa, ættingja og starf…

Kæru vinir okkar í Brákarhlíð !

Áríðandi tilkynning til íbúa, ættingja og starfsfólks Brákarhlíðar vegna sýkingar af völdum Kórónaveirunnar (COVID-19) á Íslandi

Stjórnendur Brákarhlíðar hafa tekið þá ákvörðun að loka hjúkrunarheimilinu fyrir heimsóknum ættingja og annarra gesta frá og með 6.mars 2020 þar til annað verður formlega tilkynnt.

Er þetta gert að höfðu samráði við Sóttvarnarlækni og Landlækni eftir að Neyðarstigi almannavarna var lýst yfir fyrr í dag. Við í Brákarhlíð erum hér að fylgja eindregnum tilmælum þessara aðila sem eru í framvarðasveit Almannavarna Íslands.

Heilsa og velferð íbúanna þarf alltaf að vera í forgangi!

Nú er staðfest að smit vegna Kórónaveirunnar hafa borist á milli einstaklinga í þjóðfélaginu. Þar sem íbúar Brákarhlíðar eru flestir aldraðir og / eða með ýmsa undirliggjandi sjúkdóma eru þeir í sérstökum áhættuhóp tengt því að veikjast alvarlega af Kórónaveirunni.

Leita þarf allra leiða til að draga úr þeirri hættu að íbúar hjúkrunarheimila veikist af Kórónaveirunni. Okkur þykir mjög leitt að þurfa að taka svo stóra ákvörðun en þetta er gert með velferð íbúanna okkar í húfi og biðjum við fólk að sýna þessari ákvörðun virðingu og skilning. Það er ljóst að það getur reynst íbúa mjög erfitt að fá ekki heimsóknir frá ættingjum sínum og á sama hátt getur það reynst ættingjum íbúans mjög erfitt að heimsækja hann ekki. Það er samt nauðsynlegt að grípa til þessarra ráðstafana til að koma í veg fyrir að íbúi veikist af veirunni og eins geta smit borist frá ættingjum eins íbúa til annars íbúa.

Jafnframt verður umferð allra annara gesta en nauðsynlegs starfsfólks á vakt takmörkuð inn á heimilið. Svo sem birgja með vörur, iðnaðarmenn og aðra sem þurfa að koma inn á heimilin.

Varðandi símtöl inn á heimilið og upplýsingar um líðan heimilisfólks þá bendum við á bein númer inn á hvert heimili sem nálgast má á www.brakarhlid.is

Einnig er mikilvægt að þið kynnið ykkur upplýsingar og leiðbeiningar á vef Landlæknisembættisins www.landlaeknir.is Þar eru greinargóðar upplýsingar og leiðbeiningar tengdar stöðu málar, en þær geta breyst frá degi til dags.

Undirritaður veitir frekari upplýsingar ef óskað er.

f.h. Brákarhlíðar
Björn Bjarki Þorsteinsson
framkvæmdastjóri
Sími 660-8245