Kæru vinir,
 Í ljósi hertra sóttvarnaraðgerða á landsvísu þá sjáum við okkur ekk...

Kæru vinir, Í ljósi hertra sóttvarnaraðgerða á landsvísu þá sjáum við okkur ekk…

[ad_1]

Kæru vinir,

Í ljósi hertra sóttvarnaraðgerða á landsvísu þá sjáum við okkur ekki fært að sinni að slaka á heimsóknarreglunum okkar, sjá: https://brakarhlid.is/covid-19-upplysingasida/ og er því áfram lokað á heimsóknir til okkar fólks.
Við höldum í vonina um að fyrr en seinna verði hægt að opna á einstaka heimsóknir. Við munum fara varlega af stað þegar slakað verður á aðgerðum. Staðan verður endurmetin um leið og aðstæður leyfa.

Við þökkum kærlega fyrir þann skilning og hlýhug sem heimilisfólk, aðstandendur og starfsmenn hafa sýnt í orði og verki vegna þessara aðstæðna.

Með vinsemd,

Borgarnesi, 2. nóvember 2020
Stjórnendur Brákarhlíðar

[ad_2]