Mynd frá Brákarhlíð.

Heimsóknar- og umgengnisreglur, gilda frá og með 30. desember 2021

Kæru íbúar og aðstandendur, setjum hér inn uppfærðar heimsóknar- og umgengnisreglur vegna stöðunnar í samfélaginu. Við óskum eindregið eftir að aðstandendur tali sig saman og upplýsi um hvernig málum er háttað nú sem og að þessi tilmæli okkar séu virt því þessar ráðstafanir eru gerðar til að vernda okkar fólk, bæði heimilismenn og starfsfólk, þannig að hlutirnir gangi sinn gang hjá okkur og ekki þurfi að grípa til frekari ráðstafana.
 
Eftirfarandi reglur gilda frá og með 30.desember uns annað verður tilkynnt:
 
Að öllu jöfnu mæti alls ekki fleiri en 2 gestir í heimsókn til íbúa á dag, saman eða í sitthvoru lagi, við mælumst til að sömu aðilar komi í heimsókn nokkra daga í röð og skipti svo við aðra. Því færri sem ganga um heimilið því betra. Við hvetjum til að aðstandendur tali sig saman um hvernig heimsóknum er háttað.
 
Heimilið er opið á milli kl. 13:00 og 18:00 nema á gamlársdag en þá verður opið á milli kl. 12:30 og 17:30, vinsamlegast virðið fyrrgreindar fjöldatölur og tímasetningar. Við hvetjum ykkur til að gæta ítrustu árvekni og hafa allar sóttvarnaráðstafanir í heiðri.
 
Við biðlum til óbólusettra, þ.m.t. barna, að koma ekki í heimsókn að svo stöddu.
 
Allir gestir spritti hendur og setji upp grímu, ekki er lengur heimilt að taka niður grímu inn á herbergjum. Virðum 2 metra reglu.
 
Gestir mega ekki staldra við í sameiginlegum rýmum heimilisins heldur gangi beint til herbergis þess sem verið er að heimsækja og aftur beint að útidyrum að heimsókn lokinni.
 
Við hvetjum alla til að hafa opið fyrir rakningarapp Almannavarna í símum.
 
Heimilið er ekki lokað og íbúar mega fara út. Við biðjum um að ekki sé farið í fjölmenni enda 20 manna regla nú við lýði, ef farið er í boð í heimahúsi þá biðjum við um að tekins séu í það minnsta hraðpróf hjá þeim sem þar verða. Ef heimilismenn ætla úr húsi þarf að láta starfsmenn vita.
 
Við biðjum gesti að koma ekki í heimsókn ef þeir:
• Eru í sóttkví eða smitgát.
• Eru í einangrun (einnig meðan beðið er niðurstöðu úr sýnatöku).
• Hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.
• Eru með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang).
• Hafa dvalið erlendis undanfarna daga og eru ekki komnir með neikvæða niðurstöðu úr skimun eftir komuna til landsins.
 
Sem fyrr eru undantekningar gerðar og þá í samráði við starfsfólk.
 
Við vonum að heimilisfólk og ættingjar finni leiðir til þess að eiga notalega samverustund með sínum ástvinum um hátíðirnar þrátt fyrir takmarkanir, t.d. á facetime.
 
Með virðingu og vinsemd kæru vinir með þökk fyrir afskaplega góð samskipti á árinu sem er að líða.
 
Borgarnesi 30. desember 2021
f.h. Brákarhlíðar
Halla, Jórunn og Bjarki