Brákarhlíð, profile picture

Ágætu heimilismenn og aðstandendur, Í því ljósi að Covid-19 smitum er almennt a…

[ad_1]

Ágætu heimilismenn og aðstandendur,

Í því ljósi að Covid-19 smitum er almennt að fækka í samfélaginu höfum við ákveðið eftirfarandi:

• Frá og með miðvikudeginum 18. nóvember opnum við á tvær heimsóknir í viku til hvers heimilismanns. Húsið verður áfram læst og lokað fyrir almennri umferð. Gestir þurfa að hringja dyrabjöllu og bíða eftir að starfsmaður opni.
• Mælst er til að sami aðili komi í heimsókn, við metum hverja fyrirspurn um annað ef þær berast. Við óskum eftir að fá sent nafn þess aðstandanda sem mun koma í heimsókn næstu tvær vikur þannig að við náum að halda utan um hvaða gestir koma í hús. Vinsamlegast sendið upplýsingar í netfangið halla@brakarhlid.is eða með sms skilaboðum í síma 692-1876.
• Munið að hafa smitrakningarapp almannavarna uppsett í síma ykkar.
• Við mælumst til þess að fólk komi á milli kl. 13:00 og 16:00 alla jafna en það má vera að við þurfum að gefa einhverjar undantekningar frá þeim tíma. Hver beiðni um frávik verður metin.
• Varðandi þann aðstandanda sem mun koma í heimsókn þá þarf hinn sami að undirgangast allar þær reglur sem gilt hafa varðandi smitvarnir, ekki koma í heimsókn ef einhverra einkenna gætir og að vera með grímu allan tímann meðan verið er í heimsókn, ekki einungis á leið til herbergis.
• Gönguferðir heimilismanna verða heimilar umhverfis Brákarhlíð en bílferðir og verslunarferðir eru óheimilar áfram.

Við horfum til þess að þessi ráðstöfun vari að óbreyttu til og með 2.desember n.k.
Staðan verður endurmetin eftir þörfum og hlutaðeigandi upplýstir um leið og einhver breyting verður.
Þessi ákvörðun er sem fyrr tekin með hagsmuni heimilismanna okkar að leiðarljósi. Frekari upplýsingar má sjá á www.brakarhlid.is
Með vinsemd,
Borgarnesi, 17. nóvember 2020
Stjórnendur Brákarhlíðar

Brákarhlíð, profile picture

[ad_2]