Uppfærðar heimsóknarreglur 24.september 2020

Ágætu heimilismenn, aðstandendur og aðrir velunnarar heimilismanna í Brákarhlíð

 Heimsóknarreglur, gilda frá 24. september 2020

  • Einn gestur má heimsækja íbúa hvern dag. Mælst er eindregið til þess að sami gestur sinni heimsóknum.  Barn yngra en 18 ára má koma í heimsókn en þá ekki í fylgd með öðrum gesti. (Undanþága frá heimsóknarreglum er skoðuð ef heimilismaður er alvarlega veikur).
  • Vinsamlegast farið beint inn á herbergi til íbúans og ekki stoppa og spjalla á leiðinni.
  • Virðum 2 metra nándarmörk eins og hægt er.
  • Nauðsynlegt er að láta vita ef heimsóknargestir, eða þeirra nánustu, eru sendir í sóttkví til þess að við getum verið á varðbergi.

Viðbót við ofangreindar reglur taka gildi 24. september:

  • Gestur þarf að bera andlitsgrímu (maska), þegar komið er í heimsókn. Andlitsgríman þarf að vera einnota (medical þriggja laga), hægt er að fá andlitsgrímu hjá okkur og kostar stykkið kr. 100,-

Heimsóknartími er á milli kl. 13:00 og 18:00.

Við hvetjum heimilisfólk til að viðhafa eins mikla sóttkví og kostur er.

Við mælumst til þess að heimilisfólk fari ekki í bíltúra, mannfagnaði

og verslunarferðir á meðan hætta á smitum er mikil.

Munum handþvott og sprittun !

Gestir mega ekki koma í heimsókn ef þeir:

  1. eru í sóttkví
  2. eru í einangrun (einnig meðan beðið er eftir sýnatöku)
  3. hafa dvalið erlendis og ekki eru liðnir 7 dagar frá heimkomu
  4. hafa verið í einangrun vegna Covis-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift
  5. eru með einkenni (kvef, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki og niðurgang)

Þessar reglur, sem ætlaðar eru til að vernda heimilismenn og starfsfólk okkar, verða endurskoðaðar eftir þörfum og verður send út tilkynning um leið og einhver breyting verður.

Með vinsemd og þakklæti fyrir skilning á aðstæðum !

 

Borgarnesi 24. september 2020

Stjórnendur Brákarhlíðar