Ágætu ættingjar og gestir heimilisfólks – að gefnu tilefni Vegna hættu á ofnæmi…

Ágætu ættingjar og gestir heimilisfólks – að gefnu tilefni

Vegna hættu á ofnæmisviðbrögðum, öndunarerfiðleikum og öðrum áhrifum á heilsufar heimilisfólks og starfsmanna Brákarhlíðar viljum við óska eftir að ekki sé komið með afskornar liljur (þ.m.t. páskaliljur), jólarósir og aðrar ofnæmisvaldandi blóm/plöntur inn á heimilið.
Aðrar tegundir blóma, s.s. eins og túlipanar, rósir, nellikur eru ekki talin valda þessum áhrifum sem að framan greinir.

Með vinsemd og ósk um skilning á aðstæðum

Starfsfólk Brákarhlíðar