Starf forstöðumanns hjúkrunarsviðs Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Brákarhlíðar í Borgarnesi er laust til umsóknar.
Leitað er að lausnamiðuðum stjórnanda sem býr yfir miklum samskiptahæfileikum og metnaði fyrir sínu starfi og þjónustu heimilisins í þágu heimilisfólks og samfélagsins.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Ábyrgð og leiðandi hlutverk í daglegri hjúkrunarþjónustu Brákarhlíðar.
- Virk þátttaka í teymisvinnu með öðru starfsfólki heimilisins sem hefur vellíðan heimilisfólks að leiðarljósi.
- Umsjón með starfsmannahaldi hjúkrunarþjónustu, s.s. skipulagi mönnunar, stefnumótun, aðkomu að ráðningu nýrra starfsmanna, fræðsluáætlun og starfsþróun.
- Fagleg ábyrgð á gæðum hjúkrunarþjónustu heimilisins, lyfjaeftirlit og eftirlit með búnaði sem að þjónustunni snýr.
- Samskipti við hagsmunaaðila innan heimilis og utan, aðrar fagstéttir, stjórnendur og aðstandendur heimilisfólks.
Menntunar- og hæfnikröfur:
- BSc. próf í hjúkrunarfræði og leyfisbréf frá embætti landlæknis.
- Menntun eða starfsreynsla á sviði öldrunarhjúkrunar eða stjórnunar er skilyrði.
- Frumkvæði, metnaður og lausnamiðuð hugsun.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og vilji til samstarfs í teymisvinnu og sköpun liðsheildar.
- Góð íslenskukunnátta.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf ásamt afriti af starfsleyfi. Umsóknarfrestur er til og með 21 nóvember.
Nánari upplýsingar veita Jóhannes Þorkelsson, johannes@hagvangur.is og Katrín S. Óladóttir, katrin@hagvangur.is