Árshátíð starfsmannafélags Brákarhlíðar var haldin laugardaginn 10.nóvember s.l. á Hótel Hamar.  Eldhress skemmtinefnd sá um undirbúning hátíðarinnar í samstarfi við stjórn starfsmannafélagsins. 
 Í aðdraganda árshátíðarinnar var blásið til "Gleðiviku" og var ýmislegt stússað í kringum það skemmtilega þema.  Á árshátiðina voru starfsmenn og gestir þeirra hvattir til að mæta með hatta og voru þeir, sko hattarnir , af öllum stærðum og gerðum 
 Afhentar voru starfsaldursviðurkenningar á árshátíðinni og fengu eftirtaldir starfsmenn viðurkenningu í þetta sinn:
 10 ára starfsaldursviðurkenning:
 Guðríður Ringsted
 Ásta Hjaltadóttir
 15 ára starfsaldursviðurkenning:
 Erla Jóna Guðjónsdóttir
 20 ára starfsaldursviðurkenning:
 Sigríður Herdís Magnúsdóttir
 30 ára starfsaldursviðurkenning:
 Sólrún Egilsdóttir
Einnig var Helgu Karlsdóttur afhentur þakklætisvottur fyrir góð störf en Helga lét af störfum á árinu eftir rúmlega 20 ára starf fyrir heimilið.
Á myndinni eru þeir sem fengu viðurkenningar ásamt framkvæmdastjóra, á myndina vantar Sigríði Herdísi sem var því miður fjarverandi.



