Kæru vinir, sömu reglur varðandi heimsóknir til okkar í Brákarhlíð og verið hafa munu gilda áfram um sinn.
Reglan er að einn og sami má koma í heimsókn nú til heimilismanns tvisvar í viku. Ef óskir eru um að skipta um heimsóknargest þá hafið samband við Höllu í síma 692-1876 á dagvinnutíma á virkum dögum eða vakthafandi hjúkrunarfræðing.
Mikilvægt að rétt nafn sé skráð sem heimsóknargestur.
Minnum einnig þá einstaklinga sem í heimsókn mega koma að þeir þurfa að bera grímu (maska) á meðan á heimsókn varir.
Með vinsemd,
Stjórnendur Brákarhlíðar